Tækniskólinn í samvinnu við S.Helgason mun verða með námskeið í steinsmíði.
Á námskeiðinu verða kennd undirstöðuatriði í almennri steinsmíði og höggverki ásamt því að þátttakendur hanna og smíða hluti úr steini. Ýmsar steintegundir sem eru hentugar til steinhöggs eru kynntar og þátttakendur fá þjálfun í notkun meitla og annara handverkfæra sem notuð eru við steinsmíði.